Category Archives: alþingiskosningar

27.okt-alþingiskosningar-lokalokaspá

Umfjöllun um loka kosningaspánna má finna í Kjarnanum.

Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá


**Framboð með minna en 2.0% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (27. okt – 23:55):

  • Skoðanakönnun MMR 26. – 27. október (20,4%)
  • Þjóðarpúls Gallup 23. – 27 október. (27,5%)
  • Skoðanakönnun Zenter Rannsókna 23. – 27. október (13,1%)
  • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 22. – 25. október (20,9%)
  • Skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis 23. – 24. okt (18,1%)

Þróun fylgis fram á kjördag.

    Til að taka mið af fylgiþróun síðustu daga í lokaspá fá flokkar eftirfarandi viðbót við vegið meðaltal úr skoðanakönnunum:

  • A: +0,1%
  • B: +0,4%
  • C: +0,4%
  • D: óbreytt
  • F: -0,1%
  • M: óbreytt
  • P: +0,2%
  • S: óbreytt%
  • V: -0,8%

Fylgisþróun – síðan ríkisstjórnin féll í september

Fylgisþróun – síðan í júlí

27. okt-þingsætaspá-lokalokaspá

Umfjöllun um loka kosningaspánna má finna í Kjarnanum.

Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í síðustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*. Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).

Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð

Likur flokkar

Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum.

Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna

Tveggja flokka stjórnir

Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda. Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Líkur á að þrír framboðslistar (án aðkomu D&V) nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Líkur á að D, V auk eins annars framboðslista nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir

Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna

Líkur á að fjórir eða fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Fjogurra eda fimm flokka stjórnir

Hlekkur á þingsætafjölda allra mögulegra stjórna.

*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.