Umfjöllun um þingsætaspána 14. október má finna í Kjarnanum.
Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í síðustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*. Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).
Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð
Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum.
Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna
Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda. Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.
Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna
Líkur á að þrír framboðslistar nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna
Líkur á að fjórir eða fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
Hlekkur á þingsætafjölda allra mögulegra stjórna.
*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.