27. ágúst-Þingsætaspá


Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*. Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).

Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð

Likur flokkar

Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 12% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 18 þingmenn og 11% líkur á að Viðreisn (C) fái 4 þingmenn kjörna.

Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna

Tveggja flokka stjórnir

Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Líkur á að þrír framboðslistar (án aðkomu D&V) nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Líkur á að D, V auk eins annars framboðslista nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir

Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna

Líkur á að fjórir eða fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Fjogurra eda fimm flokka stjórnir

*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.