Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*. Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).
Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð
Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 15% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 15 þingmenn og 15% líkur á að Viðreisn (C) fái 5 þingmenn kjörna.
Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna
Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.
Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna
Líkur á að þrír framboðslistar (án aðkomu D&V) nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna
Líkur á að D, V auk eins annars framboðslista nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna
Líkur á að fjórir eða fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.