Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*. Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).
Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð
Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 13% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 16 þingmenn og 17% líkur á að Viðreisn (C) fái 6 þingmenn kjörna.
Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna
Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.
Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna
Líkur á að þrír framboðslistar (án aðkomu D&V) nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Líkur á að D, V auk eins annars framboðslista nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 38% líkur eru á að núverandi ríkisstjórn (DVB) nái a.m.k. 32 þingsætum og haldi þingmeirihluta.
Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna
Líkur á að fjórir eða fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.