Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*.
Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).
Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð
Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 13% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 11 þingmenn og 19% líkur á að Píratar (P) fái 4 þingmenn kjörna.
Nokkrir flokkar eiga á hættu að ná ekki inn manni miðað við fylgi í nýjustu skoðanakönnunum
- Vinstri græn (V)
- 46% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
- Sósíalista flokkurinn (J)
- 35% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
- Píratar (P)
- 25% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
- Framsókn (B)
- 11% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
- Flokkur fólksins (F)
- 7% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna
Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er línan sem þarf að komast yfir. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 18% líkur eru á að Samfylkingin og Miðflokkurinn (SM) nái samanlagt nógu mörgum þingsætum til að mynda meirihluta og 8% líkur á að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn (DS) nái meirihluta á þingi.
Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna
Nokkur dæmi um líkur á að þrír framboðslistar nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.
Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan
- Flokkasamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðissflokks
- Auk M – DSM – 93% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Auk C – DSC – 77% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Auk F – DSF – 46% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Stjórnarandstöðuflokkarnir
- PSC – 18% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Flokkasamstarf vinstri flokkanna VSJ
- VSJ – < 1% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM
- DCM – 37% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
Þingsætafjöldi fjögurra flokka stjórna
Nokkur dæmi um líkur á að fjórir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.
Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan
- Flokkasamstarf vinstri flokkanna VSJ ásamt P
- VPSJ – 3% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM með F
- DCMF – 81% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM með B
- DBCM – 75% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
- Flokkasamstarf flokkanna DBMF
- DBMF – 43% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.