Athugið að þessi færsla var uppfærð eftir að atkvæðafjöldi Miðflokksins var leiðréttur.

Frávik kannana

Meðalfrávik kannana í lokaspá fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí 2026*

KönnunaraðiliTímabilMeðalfrávik
Gallup11. – 15. maí1.38%
Maskína12. – 15. maí1.05%
Meðaltal1.21%

Reiknað út frá atkvæðatölum birtum á vef Reykjavíkurborgar.

Ef við reiknum samsvarandi frávik í loka matinu á kosningaspa.is, er meðalfrávik 1.08%.

Ef við berum gögnin í töflunni að ofan saman við meðalfrávik í borgarstjórnarkosningum 2022, sjáum við að frávikið er lægra en í síðustu kosningum.

Meðalfrávik kannana í lokaspá fyrir borgarstjórnarkosnongar 2022*

KönnunaraðiliTímabilMeðalfrávik
Prósent4. – 9. maí 20223.50%
Maskína4. – 9. maí 20222.03%
Gallup9. – 13. maí 20221.44%
Maskína12. – 13. maí 20222.03%
Meðaltal2.25%

Meðalfrávik ef við tökum allar fjórar kannanir er 2.25%, en ef við skoðum eingöngu kannanir í sömu viku og kosningarnar lækkar frávikið í 1.74%.

*(Flokkar með með meira en 1.0% fylgi í könnunum)