kosningaspa.is

    • Umsjón og ábyrgð: Baldur Héðinsson
  • 28. okt-þingmannaspá kjördæmi

    October 28, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá
    Nýja þingmannaspá fyrir öll kjördæmi landsins er að finna á Kjarnanum.

    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa

  • 28.okt-alþingiskosningar*

    October 28, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá

    *Uppfært 12:12 eftir birtingu könnunar MMR og aftur 17:05 eftir birtingu Þjóðarpúls Gallup.

    Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá

    [visualizer id=”381″]
    **Framboð með minna en 0.5% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

    Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (28. október):

    • Þjóðarpúls Gallup 24. – 28. október (28,3%)
    • Skoðanakannanir MMR 19. – 26. og 26. – 28. október (24.4%)
    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 20. – 27. október (27,0%)
    • Skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis 25. – 26. október (20,3%)

    Fylgisþróun – síðustu tveir mánuðir

    [visualizer id=”379″]

    Fylgisþróun – 2016

    [visualizer id=”374″]

  • 27. okt-alþingiskosningar

    October 27, 2016
    alþingiskosningar

    Kosningaspá verður uppfærð í fyrramálið þegar nægjanlegar upplýsingar um framkvæmd könnunar Stöðvar 2, Fréttablaðsins og Vísis liggja fyrir.

  • 26.okt-alþingiskosningar*

    October 26, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá

    *uppfært 17:20 eftir birtingu könnunar MMR.

    Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá

    AlthingisKosningaspa
    **Framboð með minna en 1% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

    Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (26. október):

    • Skoðanakönnun MMR 19. – 26. október (37.0%)
    • Skoðanakönnun Fréttablaðsins 24. – 25. október (31,8%)
    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 13. – 19. október (31,2%)
  • Þingmannaspá – höfuðborgarsvæðið

    October 25, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá
    Nýja þingmannaspá fyrir höfuðborgarkjördæmin er að finna á Kjarnanum.

    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa

  • Þingmannaspá – landsbyggðin

    October 24, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá
    Nýja þingmannaspá fyrir landsbyggðarkjördæmin er að finna á Kjarnanum.

    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa
    AlthingisKosningaspa

  • Þingmannaspá – aðferðafræði

    October 24, 2016
    Aðferðafræði, alþingiskosningar
    Þingsætaspáin

    Ný þingsætaspá kosningaspá.is og Kjarnans mælir nú líkindi á því að einstaka frambjóðandi nái kjöri í Alþingiskosningunum næstkomandi laugardag. Niðurstöðurnar byggja á fyrirliggjandi könnunum á fylgi framboða í öllum sex kjördæmum landsins hverju sinni og eru niðurstöðurnar birtar hér að vefnum. Þingsætaspáin sem nú er birt byggir á Þjóðarpúlsi Gallup 3.-12 október (vægi 57%) og Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 23. september – 5. október (vægi 43%). Ef fleiri könnunaraðilar birta fylgi framboða niður á kjördæmi ásamt upplýsingum um framkvæmd könnunar verður þeim upplýsingum bætt inn í þingsætaspánna.

    Gallup er eini könnunaraðilinn sem hefur veitt aðgang að fylgistölum niður á kjördæmi. Auk þess var að finna fylgi niður á kjördæmi í Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar sem birt var í Morgunblaðinu og á mbl.is. Fylgi flokka í kjördæmum hefur ekki hefur verið birt í Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 6.-12 október eða í Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 13.-19 október.

    Fyrir kjördæmin

    Líkur á því að einstaka frambjóðandi nái kjöri byggja á reiknilíkani stærðfræðinganna Baldurs Héðinssonar og Stefáns Inga Valdimarssonar. Í stuttu máli er aðferðafræðin sú að fylgi framboða í skoðanakönnunum er talin líklegasta niðurstaða kosninga að viðbættri óvissu sem byggir á sögulegu fráviki kannana frá kosningaúrslitum. Söguleg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/vanmeta fylgi flokks í einu kjördæmi og að ofmeta/vanmeta fylgi flokksins í öðrum kjördæmum. Frávikið frá líklegustu niðurstöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjördæma. Ef frávikið er neikvætt í einu kjördæmi fyrir ákveðinn flokk aukast líkurnar á að það sé sömuleiðis neikvætt í öðrum kjördæmum.

    Reiknilíkanið hermir 100.000 „sýndarkosningar“ og úthlutar kjördæma- og jöfnunarsætum út frá niðurstöðunum. Líkur frambjóðanda á að ná kjöri er þess vegna hlutfall „sýndarkosninga“ þar sem frambjóðandinn nær kjöri.

    Tökum ímyndað framboð X-listans í Norðvesturkjördæmi sem dæmi: Framboðið mælist með 20 prósent fylgi. Í flestum „sýndarkosningunum“ fær X-listinn 2 þingmenn en þó kemur fyrir að fylgið í kjördæminu dreifist þannig að niðurstaðan er aðeins einn þingmaður. Sömuleiðis kemur fyrir að X-listinn fær þrjá þingmenn í kjördæminu og í örfáum tilvikum eru fjórir þingmenn í höfn.

    Ef skoðað er í hversu mörgum „sýndarkosningum“ hver frambjóðandi komst inn sem hlutfall af heildarfjölda fást líkurnar á að sá frambjóðandi nái kjöri. Sem dæmi, hafi frambjóðandinn í 2. sæti X-listans í Norðvesturkjördæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýndarkosningum“ þá reiknast líkurnar á því að hann nái kjöri í Alþingiskosningunum 90 prósent.

    Skoðanakannanir í aðdraganda Alþingiskosninga 2009 og 2013 voru notaðar til að sannprófa þingsætaspánna, þar sem spáin er borin saman við endanlega úthlutun þingsæta.

  • 21. okt-alþingiskosningar

    October 21, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá
    Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá

    AlthingisKosningaspa
    **Framboð með minna en 1% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

    Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (21. október):

    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 13. – 19. október (27,6%)
    • Skoðanakönnun Fréttablaðsins 17. – 18. október (17,8%)
    • Skoðanakönnun MMR 6. – 13. október (16,2%)
    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 6. – 12. október (16,7%)
    • Þjóðarpúls Gallup 3. – 12. október (21,7%)
  • 19. okt-alþingiskosningar

    October 19, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá
    Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá

    AlthingisKosningaspa
    **Framboð með minna en 1% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

    Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (19. október):

    • Skoðanakönnun Fréttablaðsins 17. – 18. október (21,3%)
    • Skoðanakönnun MMR 6. – 13. október (22,8%)
    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 6. – 12. október (23,8%)
    • Þjóðarpúls Gallup 3. – 12. október (32,1%)
  • 14.okt-alþingiskosningar*

    October 14, 2016
    alþingiskosningar, kosningaspá

    *uppfært 18:15 eftir birtingu könnunar MMR.

    Fylgi framboða fyrir alþingiskosningar skv. nýjustu spá

    AlthingisKosningaspa
    **Framboð með minna en 1% fylgi eru flokkuð undir ‘Aðrir’.

    Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir alþingiskosningar (14. október):

    • Skoðanakönnun MMR 6. – 13. október (23,9%)
    • Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 6. – 12. október (24,9%)
    • Þjóðarpúls Gallup 3. – 12. október (33,1%)
    • Skoðanakönnun Fréttablaðsins 10. – 11. október (18,1%)
Previous Page
1 … 16 17 18 19 20 … 23
Next Page

kosningaspa.is

  • Instagram
  • Facebook
  • X