Nú er styttist í forseta- og alþingiskosningar mun ég, í samvinnu við Kjarnann, endurvekja síðuna kosningaspa.is.
Í stað þess að beina athyglinni að niðurstöðum einstakra skoðanakannana, notast kosningaspa.is við allar fyrirliggjandi kannanir.
Reiknað er vægi fyrir hverja könnun sem ákvarðast af þremur þáttum:
1. Hver framkvæmir könnunina: Áreiðanlegri aðilar vega þyngra
2. Hvenær könnunin var framkvæmd: Nýrri kannanir vega þyngra
3. Hve margir svara könnuninni: Fjölmennari kannanir vega þyngra
Fylgi einstakra framboða er fundið með vegnu meðaltali úr fyrirliggjandi skoðanakönnunum. Nánari fróðleik um aðferðafræðina sem reiknilíkanið byggir á má finna hér.
Spá um stöðu flokka fyrir alþingiskosningar fer í loftið nú þegar og verður hún uppfærð eftir hverja nýja könnun.
Kosningaspá fyrir forsetakjör verður birt þegar kannanir sem endurspegla núverandi frambjóðendahóp hafa verið gerðar.
Fylgi framboða til borgarstjórnar skv. nýjustu spá – loka spá fyrir kosningar
Kannanir í kosningaspá 30. maí:
Könnun Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið 21. – 27. maí
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 27-28. maí
Þjóðarpúls Capacent 23. maí – 29. maí
Skoðanakönnun MMR 29. maí – 30. maí
Vikmörk í kosningaspá 30. maí: 0.9%-3.2%
Fylgisþróun – síðusti mánuður
Fylgisþróun – síðustu 3 mánuðir
Úthlutun borgarfulltrúa skv. nýjustu kosningaspá
Röð borgarstjórnarfulltrúa skv. nýjustu spá
sæti
fulltrúi
1
S1
2
D1
3
Æ1
4
S2
5
S3
6
D2
7
Æ2
8
S4
9
V1
10
Þ1
11
D3
12
B1
13
S5
14
Æ3
15
S6
16
D4
17
Æ4
18
D5
19
V2
20
Þ2
Samkvæmt nýjustu kosningaspá fær núverandi meirihluti níu menn. Sjötti fulltrúi Samfylkingar er síðastur inn borgarstjórn og fjórði fulltrúi Sjálfstæðisflokks er næstur inn.
Líklegt verður að teljast að í kosningunum á morgun fái flokkarnir í núverandi meirihluta 8 eða 9 borgarfulltrúa og meirihlutinn haldi, Sjálfstæðisflokkur fái 3 eða 4 borgarfulltrúa, Vinstri hreyfingin, Píratar og Framsókn & flugvallarvinir fái öll 1 borgarfulltrúa.
Sjá einnig á Kjarnanum
Tvær nýjar kannanir birtar í morgun, sem sýna nokkra hreyfingu á fylgi. Helsta breyting frá síðustu spá er að Björt framtíð tapar fulltrúa til Samfylkingar. Framsókn og flugvallarvinir auka fylgi sitt ásamt Samfylkingu. Önnur framboð tapa fylgi.
Fylgi framboða til borgarstjórnar skv. spá 29. maí.
Kannanir í kosningaspá 29. maí:
Könnun Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið 12. – 15. maí
Þjóðarpúls Capacent 7. maí – 21. maí
Skoðanakönnun MMR 20. maí – 23. maí
Skoðanakönnun MMR 26. maí – 28. maí
Könnun Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið 21. – 27. maí