1. júní – Líkur á sigri – lokaspá

Staða í könnunum + fylgisþróun

Hér að neðan má sjá líkur á að frambjóðandi sigri forsetakosningarnar í dag 1. júní. Líkurnar eru reiknaðar út frá lokamati á fylgi frambjóðenda og hversu mikið frávik hefur verið í síðustu skoðanakönnunum fyrir kosningar í sögulegum gögnum. Lokamat á fylgi frambjóðenda notast skoðanakannanir auk þess sem fylgið er framreiknað út frá þeirri fylgisþróun sem við höfum séð síðustu vikuna fyrir kosningar. Keyrðar eru 500.000 sýndarkosningar til að reikna út hversu líklegt er að hver og einn frambjóðandi sigri.








Aðrir frambjóðendur ná ekki 1% sigur líkum.

1. júní – fylgi – lokamat

Mat á stöðunni út frá könnunum

Mat á fylgi frambjóðenda og líkur á sigri í kosningunum í dag miðað við niðurstöður síðustu skoðanakannana má sjá í færslum gærdagsins

Mat á stöðunni út frá könnunum + fylgisþróun

Við mat á fylgi frambjóðenda á kjördag hef ákveðið að nota sömu skoðanakannanir en að auki framreikna fylgið út frá þeirri fylgisþróun sem við höfum séð síðustu vikuna fyrir kosningar.

Staðan – Framreiknað fylgi frambjóðenda á kjördag








Eins og sést á myndinni að ofan eru Halla Tómasdóttir og Katrín Jakobsdóttir svo gott sem hnífjafnar, þó Halla sé metin með örlítið hærra fylgi en Katrín.

Fylgisþróun

**Frambjóðendur með minna en 1.5% fylgi eru flokkaðir undir ‘Aðrir’.

31. maí – Líkur á sigri

Hér að neðan má sjá líkur á að frambjóðandi sigri forsetakosningarnar 1. júní næstkomandi. Líkurnar eru reiknaðar út frá stöðunni í kosningaspánni og hversu mikið frávik hefur verið í skoðanakönnunum einum degi fyrir kosningar í sögulegum gögnum. Keyrðar eru 100.000 sýndarkosningar til að reikna út hversu líklegt er að hver og einn frambjóðandi sigri.

Líkur á sigri

  • Katrín Jakobsdóttir: 40%
  • Halla Hrund: 34%
  • Halla Tómasdóttir: 16%
  • Baldur Þórhallsson: 7%
  • Jón Gnarr: 2%
  • Arnar Þór: 1%

Aðrir frambjóðendur ná ekki 1% sigur líkum.

31. maí – Fylgi

Staðan – Fylgi frambjóðenda

Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir forsetakosningar:

  • Félagsvísindastofnun 22. – 30. maí (vægi: 12.0%)
  • Prósent 27. – 30. maí (vægi: 26.1%)
  • Maskína 27. – 29. maí (vægi: 30.2%)
  • Gallup 24. – 31. maí (vægi: 31.7%)

**Frambjóðendur með minna en 1.5% fylgi eru flokkaðir undir ‘Aðrir’.

Umfjöllun í Heimildinni.

30. maí – Líkur á sigri

Hér að neðan má sjá líkur á að frambjóðandi sigri forsetakosningarnar 1. júní næstkomandi. Líkurnar eru reiknaðar út frá stöðunni í kosningaspánni og hversu mikið frávik hefur verið í skoðanakönnunum tveimur dögum fyrir kosningar í sögulegum gögnum. Keyrðar eru 100.000 sýndarkosningar til að reikna út hversu líklegt er að hver og einn frambjóðandi sigri.

Líkur á sigri

  • Katrín Jakobsdóttir: 41%
  • Halla Hrund: 31%
  • Halla Tómasdóttir: 17%
  • Baldur Þórhallsson: 8%
  • Jón Gnarr: 2%
  • Arnar Þór: 1%

Aðrir frambjóðendur ná ekki 1% sigur líkum.

Sögustund

Fyrir þá sem eru áhugasamir um hvernig líkanið metur líkur á að frambjóðandi sigri forsetakosningar er gott að fara yfir hvernig líkanið metur líkur á sigri í fyrri forsetakosningum.

Forsetakosningar 2020

  • Fylgi í síðustu kosningaspá fyrir kosningar
    • Guðni Th. Jóhannesson 92.9%
    • Guðmundur Franklín Jónsson 7.1%
  • Líkur á sigri
    • Guðni Th. Jóhannesson >99.9%
    • Guðmundur Franklín Jónsson <0.1%

Forsetakosningar 2016

  • Fylgi í síðustu kosningaspá fyrir kosningar
    • Guðni Th. Jóhannesson 45.8%
    • Halla Tómasdóttir 18.2%
    • Davíð Oddsson 15.7%
    • Andri Snær Magnason 15.2%
    • Sturla Jónsson 2.5%
    • Ástþór Magnússon 1.1%
    • Aðrir < 1%
  • Líkur á sigri
    • Guðni Th. Jóhannesson 99%
    • Halla Tómasdóttir 1%
    • Davíð Oddsson <1%
    • Andri Snær Magnason <1%
    • Sturla Jónsson <1%
    • Ástþór Magnússon <1%
    • Aðrir <1%

Forsetakosningar 1996

  • Meðal fylgi í síðustu skoðanakönnunum fyrir kosningar
    • Ólafur Ragnar Grímsson 38.7%
    • Pétur Kr. Hafstein 30.7%
    • Guðrún Agnarsdóttir 27.1%
    • Ástþór Magnússon 3.5%
  • Líkur á sigri
    • Ólafur Ragnar Grímsson 75%
    • Pétur Kr. Hafstein 17%
    • Guðrún Agnarsdóttir 8%
    • Ástþór Magnússon <1%
    • Aðrir <1%

27. maí – Líkur á sigri

Hér að neðan má sjá líkur á að frambjóðandi sigri forsetakosningarnar 1. júní næstkomandi. Líkurnar eru reiknaðar út frá stöðunni í kosningaspánni og hversu mikið frávik hefur verið í skoðanakönnunum fimm dögum fyrir kosningar í sögulegum gögnum. Keyrðar eru 100.000 sýndarkosningar til að reikna út hversu líklegt er að hver og einn frambjóðandi sigri.

Líkur á sigri

  • Katrín Jakobsdóttir: 46%
  • Halla Hrund: 18%
  • Halla Tómasdóttir: 17%
  • Baldur Þórhallsson: 15%
  • Jón Gnarr: 3%
  • Arnar Þór: 1%

Aðrir frambjóðendur ná ekki 1% sigur líkum.