Þingsætaspá – 24. sept**

Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*.
Umfjöllun um þingsætaspána má finna í Kjarnanum.

Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).

Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð

Likur flokkar

Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 14% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 16 þingmenn og 21% líkur á að Viðreisn (C) fái 6 þingmenn kjörna.

Líkur á að framboðslisti nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Samanlagður þingsætafjöldi eins flokks

Samanladur fjoldi thingsaeta

Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna

Tveggja flokka stjórnir

Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er sláin sem þarf að komast yfir.

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Líkur á að þrír framboðslistar (án aðkomu þeirra tveggja flokka sem mælast með mest fylgi D&B) nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir
Líkur á að D, V auk eins annars framboðslista nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Thriggja flokka stjórnir

Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 53% líkur eru á að núverandi ríkisstjórn (DVB) nái a.m.k. 32 þingsætum og haldi þingmeirihluta.

Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna

Líkur á að fjórir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Fjogurra flokka stjórnir

Þingsætafjöldi fjögurra og fimm flokka stjórna

Líkur á að fimm framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Fimm flokka stjórnir

*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi.
**Færsla uppfærð með könnunum Maskínu og Gallup 20:27