Landið í heild
Skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis næst niðurstöðum kosninga
Eitt markmið kosningaspárinnar er að setja skoðanakannanir í samhengi með því að vega saman fyrirliggjandi kannanir og gefa þeim áreiðanlegri meira vægi í spá um úrslit kosninga.
Í borgarstjórnarkosningum 2013 og forsetakosningum fyrr á þessu ári endurspeglaði vægi í lokaspá fyrir kosningar frávik könnunar frá úrslitum. Sú var ekki raunin í nýafstöðnum Alþingiskosningum.
Hér að neðan má sjá vægi kannnana í lokaspá fyrir Alþingiskosningar 29. október.
aðili | tímabil | vægi í spá |
Þjóðarpúls Gallup | 24. – 28. okt | 28.3% |
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið | 20. – 27. okt | 27.0% |
Vegið meðaltal skoðanakannana MMR | 19. – 26. og 26. – 28. okt | 24.4% |
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis | 25. – 26. okt | 20.3% |
Ef reiknað er meðalfrávik allra þessara kannana frá úrslitum kosninga fyrir sjö stærstu framboð landsins (A,B,C,D,P,S,V) fást eftirfarandi niðurstöður.
aðili | meðal frávik frá úrslitum |
Þjóðarpúls Gallup | 1.71% |
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar | 2.40% |
Vegið meðaltal skoðanakannana MMR | 2.17% |
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis | 1.23% |
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis er næst úrslitum kosninga, Þjóðarpúls Gallup fylgir í kjölfarið, svo MMR og Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar var fjærst niðurstöðum kosninganna.
Til samanburðar er skemmtilegt að skoða meðalfrávikið í forsetakosningum fyrr í sumar og borgarstjórnarkosningum 2013.
aðili | tímabil | frávik frá úrslitum |
Gallup fyrir RÚV | 20.–24. júní | 2.33% |
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið | 19.–22. júní | 2.66% |
Fréttablaðið | 21. júní | 2.73% |
aðili | tímabil | frávik frá úrslitum |
Capacent (nú Gallup) | 23.-29. maí | 1.8% |
Fréttablaðið | 27.-28. maí | 2.0% |
MMR | 29.-30. maí | 2.3% |
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið | 21.-27. maí | 3.0% |
Framtíðarspá
Sjáumst í næstu kosningum.