Landið í heild
Skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis næst niðurstöðum kosninga
Eitt markmið kosningaspárinnar er að setja skoðanakannanir í samhengi með því að vega saman fyrirliggjandi kannanir og gefa þeim áreiðanlegri meira vægi í spá um úrslit kosninga.
Í borgarstjórnarkosningum 2013 og forsetakosningum fyrr á þessu ári endurspeglaði vægi í lokaspá fyrir kosningar frávik könnunar frá úrslitum. Sú var ekki raunin í nýafstöðnum Alþingiskosningum.
Hér að neðan má sjá vægi kannnana í lokaspá fyrir Alþingiskosningar 29. október.
[table caption=”Vægi kannana í lokaspá fyrir Alþingiskosningar 29. október” colalign=”left|center|center”]
aðili,tímabil,vægi í spá
Þjóðarpúls Gallup, 24. – 28. okt,28.3%
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið,20. – 27. okt,27.0%
Vegið meðaltal skoðanakannana MMR,19. – 26. og 26. – 28. okt,24.4%
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis,25. – 26. okt,20.3%
[/table]
Ef reiknað er meðalfrávik allra þessara kannana frá úrslitum kosninga fyrir sjö stærstu framboð landsins (A,B,C,D,P,S,V) fást eftirfarandi niðurstöður.
[table caption=”Meðalfrávik ef skoðuð eru sjö stærstu framboð landsins” colalign=”left|center|center”]
aðili,meðal frávik frá úrslitum
Þjóðarpúls Gallup, 1.71%
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar,2.40%
Vegið meðaltal skoðanakannana MMR,2.17%
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis,1.23%
[/table]
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis er næst úrslitum kosninga, Þjóðarpúls Gallup fylgir í kjölfarið, svo MMR og Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar var fjærst niðurstöðum kosninganna.
Til samanburðar er skemmtilegt að skoða meðalfrávikið í forsetakosningum fyrr í sumar og borgarstjórnarkosningum 2013.
[table caption=”Frávik kannana – forsetakosningar 2016″ colalign=”left|center|center”]
aðili,tímabil,frávik frá úrslitum
Gallup fyrir RÚV,20.–24. júní,2.33%
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið,19.–22. júní,2.66%
Fréttablaðið,21. júní,2.73%
[/table]
[table caption=”Frávik kannana – borgarstjórnarkosningar 2013″ colalign=”left|center|center”]
aðili,tímabil,frávik frá úrslitum
Capacent (nú Gallup),23.-29. maí,1.8%
Fréttablaðið,27.-28. maí,2.0%
MMR,29.-30. maí,2.3%
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið,21.-27. maí,3.0%
[/table]
Framtíðarspá
Sjáumst í næstu kosningum.