29. nóv – þingsætaspá

Hér að neðan má sjá þingsætaspá fyrir komandi alþingiskosningar. Spáin byggir á fylgi framboða á landsvísu í nýjustu kosningaspá auk þess sem tekið er tillit til styrks framboða í mismunandi kjördæmum*.

Framkvæmdar eru 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi og fyrir hverja niðurstöðu er þingsætum úthlutað (kjördæma- og jöfnunarþingsætum).

Líkur á fjölda þingsæta fyrir helstu framboð

Í töflunni að ofan má sjá dreifingu á fjölda þingsæta sem flokkur fær kjörinn í 100.000 sýndarkosningum. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 15% líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn (D) fái 12 þingmenn og 18% líkur á að Píratar (P) fái 4 þingmenn kjörna.

Nokkrir flokkar eiga á hættu að ná ekki inn manni miðað við fylgi í nýjustu skoðanakönnunum

  • Lýðræðisflokkurinn (L)
    • 84% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Vinstri græn (V)
    • 63% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Sósíalistaflokkurinn (J)
    • 32% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Píratar (P)
    • 35% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Framsókn (B)
    • 6% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Flokkur fólksins (F)
    • 1% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni
  • Miðflokkurinn (M)
    • 1% líkur á að flokkurinn nái ekki inn þingmanni

Þingsætafjöldi tveggja flokka stjórna

Líkur á að tveir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Til að ná meirihluta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi þingmanna að vera a.m.k. 32. Rauða strikið í töflunni hér að ofan er línan sem þarf að komast yfir. Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan að 6% líkur eru á að Samfylkingin og Viðreisn (SC) nái samanlagt nógu mörgum þingsætum til að mynda meirihluta og 4% líkur á að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn (DS) nái meirihluta á þingi.

Þingsætafjöldi þriggja flokka stjórna

Nokkur dæmi um líkur á að þrír framboðslistar nái samanlagt ákv. þingsætafjölda.

Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan

  • Flokkasamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðissflokks
    • Auk C – DSC – 93% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
    • Auk F – DSF – 64% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf PSC
    • PSC – 20% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf vinstri flokkanna VSJ
    • VSJ – < 1% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM
    • DCM – 37% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf SBC
    • SBC – 40% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf SCF
    • SCF – 69% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing

Þingsætafjöldi fjögurra flokka stjórna

Nokkur dæmi um líkur á að fjórir framboðslistar nái samanlagt ákveðnum þingsætafjölda.

Til að taka dæmi, þá má lesa úr myndinni að ofan

  • Flokkasamstarf vinstri flokkanna VSJ ásamt P
    • VPSJ – <1% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM með F
    • DCMF – 94% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf hægri flokkanna DCM með B
    • DBCM – 81% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing
  • Flokkasamstarf flokkanna DBMF
    • DBMF – 41% líkur á að ná amk 32 mönnum á þing

*Til að meta styrk framboða í hverju kjördæmi fyrir sig er landsfylgi framboða í síðustu þremur alþingiskosningum borið saman við kjördæmafylgi auk kannana í aðdraganda kosninga 2024 sem birta gögn niður á kjördæmi.