Landið í heild
Skoðanakönnun Gallup næst niðurstöðum kosninga
Eitt markmið kosningaspárinnar er að setja skoðanakannanir í samhengi með því að vega saman fyrirliggjandi kannanir og gefa þeim áreiðanlegri meira vægi í spá um úrslit kosninga.
Hér að neðan má sjá vægi kannnana í lokaspá (birt 27. okt – 23:55) fyrir alþingiskosningar 28. október.
| aðili | tímabil | vægi í spá |
| Þjóðarpúls Gallup | 23. – 27 okt | 27.5% |
| Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið | 22. – 25. okt | 20.9% |
| Skoðanakönnun MMR | 26. – 27. okt | 20.4% |
| Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis | 23. – 24. okt | 18.1% |
| Skoðanakönnun Zenter Rannsókna | 23. – 27. okt | 13.1% |
Ef reiknað er meðalfrávik allra þessara kannana frá úrslitum kosninga fyrir níu stærstu framboð landsins (A,B,C,D,F,M,P,S,V) fást eftirfarandi niðurstöður.
| aðili | meðal frávik frá úrslitum |
| Þjóðarpúls Gallup | 1.31% |
| Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar | 1.83% |
| Þjóðmálakönnun MMR | 1.43% |
| Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis | 1.74% |
| Skoðanakönnun Zenter | 1.55% |
Þjóðarpúls Gallup er næst úrslitum kosninga, skoðanakönnun MMR fylgir í kjölfarið, svo skoðanakönnun Zenter, næst skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis og Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar var fjærst niðurstöðum kosninganna.
Ekki tókst að raða könnunum í rétta röð, en ánægjulegt er að sú könnun sem var næst úrslitum kosninga fékk áberandi mest vægi í lokaspá fyrir kosningar.
Til samanburðar er skemmtilegt að skoða meðalfrávikið í alþingiskosningum 2016, forsetakosningum 2016 og borgarstjórnarkosningum 2013.
| aðili | meðal frávik frá úrslitum |
| Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis | 1.23% |
| Þjóðarpúls Gallup | 1.71% |
| Vegið meðaltal skoðanakannana MMR | 2.17% |
| Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar | 2.40% |
| aðili | meðal frávik frá úrslitum |
| Gallup fyrir RÚV | 2.33% |
| Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið | 2.66% |
| Fréttablaðið | 2.73% |
| aðili | meðal frávik frá úrslitum |
| Capacent (nú Gallup) | 1.8% |
| Fréttablaðið | 2.0% |
| MMR | 2.3% |
| Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið | 3.0% |
Óvænt fylgisaukning Flokks fólksins
Flokkur fólksins fékk óvænt 6.9% fylgi í nýafstöðnum kosningum þó að í öllum síðustu könnunum hafi flokkurinn mælst með um 4% fylgi. Við aðstæður sem þessar kemur kosningaspáin að góðum notum við að meta stöðuna. Ef við skoðum líkur á fjölda þingsæta fyrir Flokk fólksins í síðustu kosningspá sést að samkvæmt spánni eru helmings líkur á að flokkurinn nái manni inn á þing, jafnvel þó að samkvæmt öllum könnunum fái flokkurinn engan þingmann kjörinn.

Framtíðarspá
Sjáumst í næstu kosningum.