Kosningaspá 2021 – uppgjör

Landið í heild

Skoðanakönnun Gallup næst niðurstöðum kosninga

Eitt markmið kosningaspárinnar er að setja skoðanakannanir í samhengi með því að vega saman fyrirliggjandi kannanir og gefa þeim áreiðanlegri meira vægi í spá um úrslit kosninga.

Hér að neðan má sjá vægi kannnana í lokaspá (birt 24. sept – 18:27) fyrir alþingiskosningar 25. september.

Vægi kannana í lokaspá fyrir alþingiskosningar 28. október
aðili tímabil vægi í spá
Skoðanakönnun Maskínu 22. – 24. sept. 29.1%
Þjóðarpúls Gallup 20. – 24. sept. 28.8%
Skoðanakönnun MMR 22. – 23. sept. 18.3%
Netpanell Félagsvísindastofnunar 14. – 23. sept. 12.2%
Skoðanakönnun Prósent 17. – 21. sept. 11.6%

Ef reiknað er meðalfrávik allra þessara kannana frá úrslitum kosninga fyrir níu stærstu framboð landsins (D,B,V,S,F,P,C,M,J) fást eftirfarandi niðurstöður.

Meðalfrávik ef skoðuð eru níu stærstu framboð landsins
aðili meðal frávik frá úrslitum
Skoðanakönnun Maskínu 2.1%
Þjóðarpúls Gallup 1.4%
Skoðanakönnun MMR 1.8%
Netpanell Félagsvísindastofnunar 2.3%
Skoðanakönnun Prósent 3.2%

Sömu könnunaraðilar komust næst kosningaúrslitum og í Alþingiskosningum 2017, Þjóðarpúls Gallup er næst úrslitum kosninga, skoðanakönnun MMR fylgir í kjölfarið. Könnunaraðilarnar sem fylgja á í kjölfarið eru skoðanakönnun Maskínu, netpanell Félagsvísindastofnunar og skoðanakönnun Prósent var fjærst niðurstöðum kosninganna.

Til samanburðar er skemmtilegt að skoða meðalfrávikið í alþingiskosningum 2017, alþingiskosningum 2016, forsetakosningum 2016 og borgarstjórnarkosningum 2013.

Frávik kannana - alþingiskosningar 2017
aðili meðal frávik frá úrslitum
Þjóðarpúls Gallup 1.3%
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 1.8%
Þjóðmálakönnun MMR 1.4%
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis 1.7%
Skoðanakönnun Zenter 1.6%
Frávik kannana - alþingiskosningar 2016
aðili meðal frávik frá úrslitum
Skoðanakönnun Fréttablaðsins Stöðvar 2 og Vísis 1.2%
Þjóðarpúls Gallup 1.7%
Vegið meðaltal skoðanakannana MMR 2.2%
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 2.4%
Frávik kannana - forsetakosningar 2016
aðili meðal frávik frá úrslitum
Gallup fyrir RÚV 2.3%
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið 2.7%
Fréttablaðið 2.7%
Frávik kannana - borgarstjórnarkosningar 2013
aðili meðal frávik frá úrslitum
Capacent (nú Gallup) 1.8%
Fréttablaðið 2.0%
MMR 2.3%
Félagsvísindast. fyrir Morgunblaðið 3.0%

Framtíðarspá

Sjáumst í næstu kosningum.